Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Ræningjar sænskra krúnudjásna stungu af í hraðbát

$
0
0

Á þriðjudag var tveimur kórónum og einu djásni til rænt úr dómkirkju 12.000 manna bæjarins Strängnäs, skammt frá Stokkhólmi.

Munirnir sem um ræðir eru frá 17. öld, kórónur Karls IX. Svíakonungs og Kristínar drottningar hans, ásamt gullbolta með ásteyptum krossi, fyrirbæri sem tilheyrir krúnudjásnum.

Kirkjan er opin gestum og leið þjófanna inn í hana því greið. Munirnir voru geymdir í sýningarskáp sem að sögn var bæði læstur og tengdur öryggiskerfi. Gert er ráð fyrir að þjófarnir hafi brotið sér leið að gripunum gegnum glerið, en lögregla hefur ekkert látið uppi um það.

Lögreglan í Svíþjóð lét frá sér þessa mynd af krúnudjásnunum. Kórónunum tveimur var rænt, ásamt öðrum gullboltanum, en ekki hefur komið fram að ræningjarnir hafi hirt um valdasprotana.

Vitni segist hafa séð tvo menn taka á rás frá kirkjubyggingunni, stökkva um borð í hvítan vélbát og hraða sér á honum burt. Leitaraðgerð með þyrlu og bátum hafði engan árangur borið á miðvikudag. Orðaði fulltrúi lögreglu það svo í samtali við Aftonbladet að staðan sé „1–0 fyrir þeim“. Interpol hefur lýst eftir þjófunum, sem þó hafa ekki verið borin kennsl á, og hinum stolnu munum.

Fulltrúi lögreglu segir erfitt munu reynast að koma gripunum í verð, þar sem um þekktar þjóðargersemar sé að ræða. „Það sem yfirleitt gerist með svona muni er að þeir koma í leitirnar fyrr eða síðar, því afar fáir eru tilbúnir að höndla með þá.“

Ræningjarnir beittu engu ofbeldi, né höfðu þeir í hótunum við fólk og sakaði engan í þjófnaðinum. Viðurlög við honum geta engu að síður numið allt að sex ára fangelsi.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283