Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Fitubollur eða alls konar fólk!

$
0
0

Elísabet Reynisdóttir skrifar.

Beta passamynd2

Teitur Guðmundsson skrifaði í Vísi 9. júní síðastliðinn grein um offitufaraldurinn sem herjar á okkur. Hann er að benda á þær augljósu staðreyndir að þjóðin er að þyngjast og með því erum við að sliga hagkerfið og fáum ekki neitt við ráðið.

Það sem ég sá aftur á móti á veraldarvefnum var það að fólki fannst hann lítilsvirða það með því að kalla greinina „Fitubollurnar“. Ég er sammála því að titill greinarinnar hefði mátt vera annar, en greinin var ágæt. Ekkert sérlega skemmtileg að lesa fyrir almenning en fræðandi eins langt og það nær.

Hann spyr, hvað er hægt að gera? Ég skal segja honum það, það er verið að útskrifa frá HÍ og HR lýðheilsufræðinga sem hafa stundað mastersnám í lýðheilsu. Þeir gætu miðlað sinni þekkingu líkt og annað heilbrigðisstarfsfólk gerir og komið á markvissum og öflugum forvörnum. Það er verið að útskrifa næringarfræðinga frá HÍ sem jafnvel fá ekki vinnu, því ekki er til fjármagn til að koma þeim að á heilsugæslustöðvum í landinu eða sjúkrastofunum. Það er verið að útskrifa íþrótta-og heilsufræðinga frá HÍ en fæstir af þeim fá vinnu á heilsugæslustöðvum eða vinnu við aðrar forvarnir nema í litlum mæli.

Þarna er lausn, en aðeins er horft á vandamálið og klórað sér í höfðinu yfir afleitri þjóð. Ef við ætlum að gera eitthvað til að bæta ástand þjóðar og rétta við ranga hegðun í heilsumálum, þá er eitt til ráða, það er að ráða þetta fólk til starfa, bretta upp ermarnar, vera jákvæð og finna lausn sem hentar.

Hegðun og vani hvers og eins segir Teitur læknir í grein sinni, en gleymir mikilvægu atriði sem er matvælaiðnaðurinn allur í heild sinni, sem hefur skapað ákveðið vandamál og þar þarf að setja fleiri reglur og lög til að verja almenning ásamt því að skattur á hollustu er of hár.

berir karlar

Það er komið fram við fólk eins og það sé ekki með öllum mjalla því að líkamsþyngdarstuðull þess er langt frá öllum eðlilegum mörkum. Hinir og þessir sérfræðingar hrópa og kalla á víxl að við séum í verðlaunasæti í offitu og þjóðin þurfi í megrun. Hvað er að? Mér líður eins og þessi hróp og köll séu eins og uppeldi sem dæmt er til að mistakast með hörmulegum afleiðingum.

Byrjum á virðingu sem hver manneskja á rétt á sama í hvaða stærðarflokki hún er. Næst skulum við fá starfsmenn heilbrigðisráðuneytis, sem með þennan málaflokk fer, til að horfast í augu við að það er vandamál til staðar og við þurfum að leysa það.  Eitt alvarlegt vandamál er að þegar fólk í ofþyngd leitar til læknis fær það ekki þjónustu því það þarf að fara heim og megra sig.

Þegar svo veikindi eru komin upp byrjum við að reyna að  slökkva elda með aðgerðum og lyfjum, það er nefnilega þannig, því miður, að ef þú ert kominn með sjúkdóm færðu þjónustu, en fram að því er lok lok og læs og þannig látið sem vandinn sé ekki fyrir hendi, fyrr en það er um seinan.

Ég vil að við stöndum saman í því að bæta ástand þjóðar og hættum að láta það trufla okkur hvaða stöðu við gegnum eða hvar við í stétt stöndum eða hvernig við lítum út, það er hægt að vera heilbrigður með háan líkamsþyngdarstuðul. Við sem lærum þessi heilsufræði eigum að vera fræðandi og upplýsandi en ekki tala niður til fólks.

Þær virðulegu starfsstéttir sem flagga mörgum árum í menntun og starfsfólk heilbrigðisráðuneytis sem með þessi mál fara þurfa að hittast og laga aðeins til í forgangsröðun og framkvæmd til að þjóðinni líði betur og heilsist vel í framtíðinni. Svona í lokin til að minna þá á sem við þessa málaflokka starfa þá gaf heilbrigðisráðuneytið út skýrslu árið 2008 um mikilvægi heilsueflingar, svo virðist sem þessi skýrsla sé í órafjarlægð í landi gleymskunnar.

„Heilsa snýst ekki eingöngu um það að fólk nái háum aldri, heldur að fólki líði sem best meðan það lifir … Öflugt samfélag byggist á góðu heilsufari og góðri líðan almennings“ (Heilbrigðisráðuneytið, 2008). Heilbrigði er greinilega ekki bara að vera grannur og með fullkominn líkama, við erum alls konar og höfum það í huga.

Með virðingu og þökk,

Elísabet Reynisdóttir, pínu fitubolla og með próf í  B.sc næringarfræði og MS-nemi.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283