Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Mínar leyndu dýrðarstundir

$
0
0

Síðastliðin tvö ár hef ég átt leyndarmál sem bara mínir nánustu hafa haft veður af og hér á kærleiksheimilinu notar húsband hvert tækifæri til að draga mig sundur og saman í háði vegna þessa.

Ég horfi á ameríska raunveruleikaþætti.
Uppáhalds eru konur giftar forríkum mönnum.
Þær fara í ferðalög á lúxusstaði, svíturnar sem þær taka undir sig eru öll nokkurs konar endurgerðir á sölum Sólkonungsins, þið skiljið, og það er glamúr, hvert sem litið er.
Heimilin þeirra eru svo stór að það þarf GPS-tæki til að rata.
Mjög fljótlega hefja þær aukabissness sem felst í að framleiða vöru í þeirra nafni því sjónvarpsþættir sem þessir eru kjörinn vettvangur til að prómótera stöffinu.

Enívei, svo á einhverjum tímapunkti fara sumar að syngja inn á plötur (hver sagði að þokkaleg rödd væri krjúsal til að slá í gegn sem þær reyndar hafa ekki gert hingað til?)
Þær skrifa líka bækur með aðstoð skuggapenna, um skilnaði, giftingar, jarðarfarir, stíl og alls konar.
Hvert atriði er útspekúlerað, get ég sagt ykkur.
Ég hef ekki tölu á matreiðslubókunum sem þær hafa gefið út.
Þær sum sé grípa til ýmissa ráða til að koma sjálfum sér og vörunni út til neytenda.
Þær eru allar með innibúandi barnfóstrur sem virðast sjá um börnin 24/7.
Mömmurnar kvarta og kveina yfir barnaskaranum (upp á þetta 1 til 3 börn), hávaðinn í þeim, klístraðir fingur, óhreinindi, eilíft bögg og þær alltaf dauðþreyttar.
Barnfóstrurnar eru mæður á launum, stundum tvær, stundum þrjár á vöktum offkors.

En að kjarna málsins.

Það sem varð kveikjan að þessari færslu er að stór kafli í lífi þessara vinkvenna okkar og er jafn krúsjal og dísænerfötin og skórnir, lúxusbílarnir, einkaþoturnar og aðrir fylgihlutir eru mannbætandi og þar getur maður fylgst með nýjungunum á lúxusmarkaði heimsins.

botox model

Lýtaaðgerðir
Í þætti sem ég horfði á í gærkvöldi fóru fjórar vinkonurnar til lýtalæknis til að laga eitt og annað og bæta í hér og svo þar.

Við erum að tala um bótox, börnin góð. Bótox í of miklu magni endar með að þurrka út hæfileikann til að geta hlegið. Þannig gerist það að konur verða unglegar múmíur. Engar andlitshreyfingar, takk.
Bjúti er tvíbent sverð.
Ein kvennanna fór í fitusog og fékk að taka afraksturinn með sér heim til að skreyta með arinhilluna.
Já, fitutægjur með örlitlum rauðum núans er fegurðin ein.
Krukkan er glær. Hún var alsæl, ég var að gubba. Nósdjob eru bara eins og hvert annað smámál og ekkert til að tíunda sérstaklega.
Við færumst neðar. Hvíttun endaþarms er audda möst. Þetta er gert með reglulegu millibili. Ætli opið sé ekki hvíttað með klórblöndu, eða afgangsefni úr nýjasta efnavopninu. Með illu skal illt út reka.
Neðar færumst við. Píkan næst!
Þrenging legganga er möst, það er svo mikið betra fyrir kynlífið. (Þær eru sammála um að eiginmennirnir séu í sjöunda himni). Pjallan býður upp á óteljandi möguleika á fegrun. Sköp eru of stór, of lítil of hátt eða lágt uppi (sé mælt frá sníp).
Þessi lýsing er brot í hafið á ferðum þessara kvenna í slipp, reglulega. Fólk með sjálfsvirðingu og metnað horfir ekki á svona þætti. Ég er með ágætis sjálfsvirðingu og metnaður minn nær yfir ótal mörg svið en þessi fáránleiki fáránleikans heillar mig á sikk máta.
Tilfinningarnar sem heltaka mig eru t.d. þessar:

Vantrú, aumingjahrollur sem berst út um allan líkamann. Þegar þar er komið sögu fer ég og athuga hvort allar gardínur séu ekki fyrirdregnar, ég vil ekki að þetta fréttist. Lágkúra, dekadens, reiði yfir misskiptingunni í heiminum og ógeð á þessum sjálfsdýrkendum. Stundum hlæ ég, stundum styn ég af hneykslan. En eitt er víst, börnin mín södd og sæl, ég mun horfa á þetta djönk á meðan upp á það er boðið.
Í gær voru það „The real housewives of New York“, svo Orange County, New Jersey, Miami og Beverly Hills.
Er það nema von að maður sé bissí í klukkutíma á virkum kvöldum.

Já, hver veit nema að ég leyfi ykkur að fylgjast með framþróun stelpnanna, á fegrunarlæknasviðinu og öðrum spennandi fyrirkomulögum sem þær taka þátt í við að gera sig að betri manneskjum og bjarga heiminum í leiðinni.
Í guðanna bænum, ekki segja neinum frá þessu leyndarmáli mínu, vil ekki að nokkur maður frétti þetta.

Þíjú …


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283